157. löggjafarþing — 78. fundur,  4. mars 2026.

afgreiðsla frumvarps úr velferðarnefnd.

[15:49]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Vegna orða hv. formanns velferðarnefndar hér um það að hagfræðinga greini á um þetta mál um launavísitöluna, sem hefur verið mikið í umræðunni utan þings, þá er það svo að það hefur enginn hagfræðingur komið fyrir nefndina sem hefur mælt þessu máli bót. Þeir kunna að vera til einhverjir þarna úti í feltinu og á það hefur verið bent að fyrrverandi ráðherra Samfylkingarinnar, Gylfi Magnússon, hafi kannski ekki mælt málinu bót en bent á að það væri hægt að laga það eitthvað. Það hefði verið fullt tilefni til að fá hann fyrir þingnefndina til að ræða þetta mál. Ég vil líka benda á það, virðulegur forseti, að 3. mars síðastliðinn barst minnisblað frá fjármálaráðuneytinu um þetta mál sem svaraði nokkrum spurningum sem höfðu verið lagðar fyrir ráðuneytið. Svarið gaf fullt tilefni til þess að kalla á fund nefndarinnar fulltrúa frá ráðuneytunum til að útskýra einmitt þessa útreikninga sem liggja fyrir. En það gafst ekki einu sinni tækifæri til þess að ræða þetta svar sérstaklega. Ég geri alvarlegar athugasemdir við (Forseti hringir.) málsmeðferð þessa máls sem svo mjög hefur verið rætt um utan þings af sérfræðingum á þessu sviði.