157. löggjafarþing — 78. fundur,  4. mars 2026.

afgreiðsla frumvarps úr velferðarnefnd.

[15:50]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F):

Frú forseti. Ég kem hér til að taka undir með kollegum mínum, hv. þingmönnum. Ég var að vona að það sem gerðist í utanríkismálanefnd hér fyrr í vikunni væri einhvers konar undantekning en svo virðist ekki vera. Það er nú orðið svolítið síðan ég sat hér á þingi og nú virðist vera að meiri hlutinn sé að taka út mál trekk í trekk án þess að koma til móts við eðlilegar beiðnir minni hlutans í nefndum til að fá fólk fyrir nefndir og til þess að fá umsagnir. Ég ætla ekki að fara að ræða efnislega einstök mál en varðandi fundarstjórn forseta þá verð ég að segja að við hljótum að velta fyrir okkur tilgangi nefnda, til hvers við erum að senda mál til umsagnar, til hvers við þingmenn erum að reyna að standa vel að löggjöfinni sem við setjum hér á þingi. Þetta grefur sannarlega undan því og það þykir mér miður.