afgreiðsla frumvarps úr velferðarnefnd.
Virðulegur forseti. Enn og aftur komum við hér upp til að ræða meðferð mála í nefndum og núna tengingu bóta við launavísitölu. Allir sem eru búnir að koma upp segja að það sé feigðarflan að fara í þessa vegferð og núna síðast Læknafélag Íslands. Ef það eru einhverjir sem eru í nálægð við þessa hópa, átta sig á því hvernig þróunin er og eru búnir að fylgjast með þróuninni þá eru það læknar. Læknafélagið sér sig knúið til að senda áskorun til stjórnvalda um að draga þetta til baka. Það er ásamt öllum helstu hagfræðingum landsins, fyrir utan einn fyrrverandi ráðherra Samfylkingarinnar sem kom og studdi þetta. Allir aðrir hagfræðingar, Seðlabankinn, fjármálaráð, fjármálaráðuneytið, nefndu það. Virðulegur forseti. Það hlýtur að vekja upp spurningar þegar nánast allir fagaðilar á Íslandi, þvert yfir, eru farnir (Forseti hringir.) að vara við og senda frá sér yfirlýsingar. Og það er ekki á hverjum degi sem Læknafélag Íslands sendir frá sér yfirlýsingar og skorar á stjórnvöld að fara ekki (Forseti hringir.) í ákveðna vegferð. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)