afgreiðsla frumvarps úr velferðarnefnd.
Virðulegur forseti. Ég verð nú að taka undir þetta og við höfum farið yfir þá gagnrýni sem fram hefur komið á þetta frumvarp. En, frú forseti, ég kem kannski hér upp til að æskja þess að forseti bregðist við þegar maður heyrir þær sögur úr nefndum, eins og í þessu tilfelli úr hv. velferðarnefnd, að það sé ekki brugðist við eðlilegum beiðnum nefndarmanna og að meiri hlutinn hafi kosið gegn því að fá gögn úr stjórnsýslunni. Sem betur fer verja þingsköpin þingmenn í því en búið er að afgreiða málið út úr nefnd og aðeins brot af þeim gögnum sem óskað var eftir að hafa skilað sér.
Virðulegur forseti. Mér þykir þetta með öllu óásættanlegt og það er ekki hægt að verja svona vinnubrögð og reyna að halda því fram að þetta sé í lagi. Það er ekki í lagi á Alþingi Íslendinga að vinna með þessum hætti.