afgreiðsla frumvarps úr velferðarnefnd.
Virðulegur forseti. Ég skal hafa skilning á því að mönnum lá á að afgreiða út málið er varðar tengingu almannatrygginga við launavísitölu. Það er greinilega skiptimynt Flokks fólksins í ríkisstjórnarsamstarfinu fyrir því Evrópuviðræðnamáli sem mun koma hér inn næstu daga. Það er augljóst, og ég hef nefnt það áður hér, hversu mikið hreðjatak Flokkur fólksins hefur á samstarfsflokkum sínum. Látum það vera. Ég hef skilning á þessum pólitísku hrossakaupum sem hér eiga sér stað. Hitt er annað mál, svo ég taki annað dæmi úr hv. velferðarnefnd, afgreiðsla nefndarinnar í morgun á frumvarpi til nýrra sóttvarnalaga. Það var afgreitt út úr nefnd í ágreiningi af því að meiri hlutinn gat ekki unnt minni hlutanum þess að fá tækifæri til að fara aðeins yfir nefndarálitið sem er mjög mikið að vöxtum en tekur þó ekki á helstu ábendingum sem komu fram meðal gesta á sviði lögfræði, en það mál varðar helstu persónuréttindi einstaklinga. Þetta mál var afgreitt í ágreiningi út úr nefndinni og mér þykir það miður og ég geld varhuga við því, virðulegur forseti, að þetta mál verði sett á dagskrá á (Forseti hringir.) næstu dögum án þess að minni hlutanum gefist færi á að vera með nefndarálit sem boðlegt er þessu máli og kallað er eftir.