157. löggjafarþing — 78. fundur,  4. mars 2026.

afgreiðsla frumvarps úr velferðarnefnd.

[15:56]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Það hlýtur að vera hæstv. forseta ljóst að það skuli vera orðinn nánast daglegur viðburður að þingmenn í minni hlutanum þurfi að leita til forseta vegna ónægrar og ófullnægjandi málsmeðferðar mála í nefndum þingsins. Það kveður alveg við nýjan tón. Því er hafnað að taka inn gesti sem leika grundvallaratriði í þeim málum sem við erum að vinna með, eins og frá Seðlabanka Íslands, eins og forstjóra Fiskistofu og það má lengi telja upp. Ef forseti hlustaði bara á þetta myndi hún átta sig á þessu og gera eitthvað í þessu. Mig langar, virðulegur forseti, að minna á orð forseta við þingsetningu síðastliðið haust þar sem hún í kjölfar beitingar kjarnorkuákvæðisins taldi sig þurfa að vinna til baka traust þingmanna, taldi sig þurfa að vinna til baka traust þingsins.

Virðulegur forseti. Erum við á þeirri vegferð? Er það mat virðulegs forseta að við séum á þeirri vegferð? (Forseti hringir.) Ábyrgð forseta er mikil hér.