157. löggjafarþing — 78. fundur,  4. mars 2026.

afgreiðsla frumvarps úr velferðarnefnd.

[15:58]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Um leið og ég þakka hv. velferðarnefnd fyrir vel unnin störf þá þakka ég virðulegum forseta fyrir slíkt hið sama. Hins vegar tel ég mig knúna til að koma hér upp til þess að benda á furðulegan falsfréttaflutning og skyggnilýsingar sem hér eru viðhafðar í þessum æðsta ræðustóli landsins, skyggnilýsingar í orðsins fyllstu merkingu. Þingmenn hafa komið hér upp og ýmist er það að Flokkur fólksins sé hækja, aukahjól undir vagni ríkisstjórnarinnar, einhver holufylling í störfum ríkisstjórnarinnar eða að Flokkur fólksins ráði öllu í ríkisstjórn, beiti einhverjum heraga og kúgi ríkisstjórnina til þess að gera það sem Flokki fólksins sýnist. Það er mesti misskilningur. Flokkur fólksins hefur frá fyrsta degi óskað eftir og haft á sinni stefnuskrá að koma með aukið lýðræði, beint aukið lýðræði. Flokkur fólksins treystir sinni þjóð til að axla þá ábyrgð að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu. Það hefur verið stefna Flokks fólksins frá byrjun og hefur ekkert breyst hvað það varðar. Ef hv. þm. Sigríður Á. Andersen (Forseti hringir.) t.d. kærði sig um að skoða það betur hefði hún kannski sleppt því sem hún sagði hér áðan og er algjör falsfrétt og hallærisleg pólitík frá A–Ö.