afgreiðsla frumvarps úr velferðarnefnd.
Virðulegi forseti. Þessi miðilsræða hæstv. ráðherra Ingu Sæland var áhugaverð. (Mennta- og barnamrh.: Ég er ekki með skyggnilýsingar hér.) Ég hef aldrei hlustað á hæstv. ráðherra og hv. þingmann leggja svona mikið upp úr slíku hlutverki áður, en hér er að dragast fram mjög skýr mynd, svo það sé bara sagt. Hv. þingmenn Viðreisnar og Samfylkingarinnar hafa verið hér í einhverju eilífðarþagnarbindindi þegar það koma mál sem augljóslega standast ekki skoðun og fá ekki þinglega meðferð. Hv. þingmenn þessara stjórnarflokka hafa verið í algeru þagnarbindindi, þora ekki að verja þetta, þora ekki að taka umræðuna. Við vitum öll að það er nákvæmlega sama að gerast — talandi um skyggnilýsingar þá er Jóhönnustjórnin endurvakin, upprisin og það sama er að gerast og þegar Samfylkingin þurfti að fórna orkumálunum til að fá ESB-vegferðina í gegn. (Forseti hringir.) Núna heitir þetta launavísitala og grásleppa og ýmislegt annað sem menn þurfa að borga í hrossakaupunum út af þessari (Forseti hringir.) ESB-þráhyggju Viðreisnar og Samfylkingar. Öllum er þetta ljóst en sorglegast er, (Forseti hringir.)virðulegi forseti, og þetta segi ég frá mínum dýpstu hjartarótum, það sorglega er að virðulegi forseti láti þessi vinnubrögð (Forseti hringir.) viðgangast því að það mun því miður hafa fordæmisgildi.