157. löggjafarþing — 78. fundur,  4. mars 2026.

afgreiðsla frumvarps úr velferðarnefnd.

[16:01]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég verð að viðurkenna að ég hafði nú frekar vonast til þess að virðulegur forseti rifjaði ekki upp úrskurð er varðar 62. gr. starfsreglna fastanefnda í þessu samhengi. Því betur sem hann er skoðaður er hann, að mér sýnist, verr grundaður. Það getur ekki verið markmiðið með þessu ákvæði 62. gr., sem leitt var fram í þessum tiltekna úrskurði. Það sem ég vil vara virðulegan forseta við er að ef forseti kippir embætti sínu úr sambandi gagnvart því að aðstoða og stíga inn í nefndarstörf þegar mikið bjátar á, eins og iðulega hefur gerst og sérstaklega í virðulegri hv. atvinnuveganefnd og velferðarnefnd undanfarin misseri, þá erum við á þeim stað að hér verður allt í havaríi þegar nálgast þinglok, ekki bara á þessu þingi heldur til framtíðar. Þetta er grafalvarlegt mál og ég hvet virðulegan forseta til að skoða þann úrskurð (Forseti hringir.) sem forseti felldi í þarsíðustu viku því hann getur ekki verið lokaniðurstaðan varðandi afskipti og leiðbeiningar forseta gagnvart nefndastarfi hér í þinginu.