157. löggjafarþing — 78. fundur,  4. mars 2026.

afgreiðsla frumvarps úr velferðarnefnd.

[16:03]
Horfa

Kristján Þórður Snæbjarnarson (Sf):

Frú forseti. Ég finn mig knúinn til að koma hér upp og ræða um stöðuna, ekki það að ég sé að gagnrýna fundarstjórn forseta, ég vil ávallt hrósa henni fyrir góða fundarstjórn. En varðandi þá umræðu um mál sem kemur úr hv. velferðarnefnd þá kom til tals í umræðu hér rétt áðan að frumvarpið um sóttvarnalög hefði verið tekið út í flýti og í ágreiningi. Þetta er mál sem er búið að vera í hv. velferðarnefnd síðan 17. september. Það eru líklega fá mál sem hafa fengið jafn langa umræðu og vinnslu í nefnd og tekið á móti gestum, öllum þeim gestum sem hefur verið óskað eftir. Tíu blaðsíðna nefndarálit var sent út á föstudaginn síðastliðinn og nefndarmenn höfðu fimm sólarhringa til að kynna sér efni nefndarálitsins, en samt er kvartað yfir því að það þurfi meiri tíma. Ég held að fólk ætti svolítið að líta sér nær í þessu. Að sjálfsögðu vöndum við til verka (Forseti hringir.) en það þurfa allir að gera.