afgreiðsla frumvarps úr velferðarnefnd.
Virðulegur forseti. Hæstv. utanríkisráðherra hefur í þó nokkurn tíma í ræðu og riti varað við uppgangi popúlískra hreyfinga í Evrópu en ég held að hæstv. utanríkisráðherra þurfi ekkert að leita til Evrópu til þess að horfa upp á að í hennar boði, m.a. og á hennar ábyrgð, er uppgangur popúlismans hér á Alþingi í beinni í þingsölum af því að þetta mál hér er ekkert annað en popúlismi sem allir eru búnir að vara við og núna síðast Læknafélag Íslands og það er ekkert gefið fyrir þau varnaðarorð sem uppi eru höfð. Það er ekkert annað, virðulegur forseti, en hreinn og beinn popúlismi.