157. löggjafarþing — 78. fundur,  4. mars 2026.

afgreiðsla frumvarps úr velferðarnefnd.

[16:06]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Frú forseti. Mig langar aðeins að velta því hér upp að hér kemur hv. þm. Kristján Þórður Snæbjarnarson og talar um hvað frumvarp um sóttvarnalög, í téðri velferðarnefnd, hafi fengið góða meðferð í nefndinni. Allir gestir fengu að koma fyrir nefndina, allir. Það voru gefnir margir, margir sólarhringar til að fara yfir málin. Af hverju í ósköpunum má þá ekki Seðlabanki Íslands koma fyrir nefndina og fylgja eftir orðum sínum þar sem hann varar við því að meiri hlutinn hér stigi það skref að launavísitölutryggja allar almannatryggingabætur? Misjafnt hafast menn að. Það er greinilega ekki sama hvaða mál er til meðferðar. Það sem við hér erum að óska eftir (Forseti hringir.) er að öll mál hljóti hér sambærilega þinglega meðferð og ég ætla að ítreka það hér við meiri hlutann: Þið eruð (Forseti hringir.) að verða þátttakendur í einum mestu hagstjórnarmistökum Íslandssögunnar.