157. löggjafarþing — 78. fundur,  4. mars 2026.

afgreiðsla frumvarps úr velferðarnefnd.

[16:08]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Hér er spurt hvers við væntum af forseta Alþingis. Við erum að fara fram á það að forseti Alþingis leggi mat á þá gagnrýni sem hér er höfð frammi, skoði með sínu fólki í þinginu hvernig vinnubrögðin hafa verið. Það er ekki bara þetta mál sem var tekið út úr nefnd í morgun. Við erum með mál í atvinnuveganefnd sem á að fara að greiða atkvæði um á eftir þar sem lagasvið Alþingis hefur bent virðulegum forseta, hv. þingmönnum og hæstv. ráðherrum á það að meiri hlutinn hefur ekki uppfyllt lagaskyldur sínar samkvæmt Hæstaréttardómi sem vitnað er til. Þetta mál er komið á dagskrá þingsins. Við erum að biðja um það að forseti þingsins, alls Alþingis, kynni sér þessa málsmeðferð og nýti það dagskrárvald sem hann hefur. Ef hann telur sig ekki geta gripið inn í störf nefnda, að hann nýti sér þá það dagskrárvald sem hann hefur hér á Alþingi og setji slík ósvinnumál ekki á dagskrá.