157. löggjafarþing — 79. fundur,  5. mars 2026.

samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins.

[10:40]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Varðandi samgönguáætlun, að hún sé ófjármögnuð, þá er hún innan ramma fjármálaáætlunar. Aðgerðaáætlun samgönguáætlunar 2026–2030 tónar við fjármálaáætlun. Varðandi nýframkvæmdirnar og þær framkvæmdir sem fara inn í innviðafélag, t.d. Sundabraut, þá verða þær greiddar með veggjöldum. Við erum að skoða fjármögnunarmódelið varðandi innviðafélagið og sjálfbærni þess félags og það mun koma frumvarp í þingið um innviðafélag þar sem tekið verður á þessum hlutum. Sundabraut mun fara þarna inn í, líklega Fljótagöng, Ölfusárbrú og fleiri mannvirki. Við Ölfusárbrú eru veggjöld og það verða líklega veggjöld á Fljótagöngum en það mun að sjálfsögðu ekki greiðast upp vegna lítillar umferðar.

Varðandi almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu er í gildi samningur ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um samgönguframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu. Að sjálfsögðu mun ríkið standa við þann samning. Aðkoma þingsins að því samkomulagi er að sjálfsögðu varðandi fjármögnunina, í gegnum fjárlög, og líka varðandi umræðu um samgönguáætlun. Ég vil taka fram að það er endurskoðunarákvæði þar sem kveðið er á um að árangurinn af þeim framkvæmdalotum sem farið er í hverju sinni verði endurskoðaður. Ég vona og hef haldið því fram að það sé gríðarlega mikilvægt að árangurinn af hverri lotu komi fram sem allra fyrst, m.a. varðandi Fossvogsbrú og aðrar framkvæmdir. Miklabraut fer í jarðgöng, Sæbraut í stokk. Þá er gert ráð fyrir varðandi þessi flýtigjöld, eða svokölluð tafagjöld, að tekið verði upp gjaldakerfi hvað það varðar. En það eru gríðarlega stórar framkvæmdir, það eru jarðgöng frá Grensásvegi vestur yfir Landspítala.

Þetta er stórt verkefni og samanlagt skila verkefni samgöngusáttmálans og Sundabrautar ríflega 1.330 (Forseti hringir.) milljörðum kr. í samfélagslegan ábata. Sundabraut mun minnka umferð á höfuðborgarsvæðinu, á Íslandi, um 150.000 km á hverjum einasta degi.