samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins.
Virðulegur forseti. Hvað ætla ég að gera í málinu? Ég ætla að bjarga málunum, svo það liggi fyrir. Varðandi sáttmála höfuðborgarsvæðisins og samgönguframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu eru þær fjármagnaðar. (IngD: Nei.) Þær eru meira að segja þannig fjármagnaðar að þær eru verðtryggðar. Framlög til Betri samgangna eru verðtryggð. Framlög til almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu eru verðtryggð. Það eru hins vegar aðrar vegasamgöngur í landinu ekki. Það er stórkostlegur munur þar á, svo það liggi fyrir. Fjárveitingavaldið er hjá Alþingi. Allar framkvæmdir sem er verið að fara í núna og eru í gangi núna eru fjármagnaðar og munu verða fjármagnaðar áfram. Ríkið setti Keldnalandið inn á sínum tíma og það er gríðarleg eign, gríðarlega stór eign upp á tugi milljarða króna og það má jafnvel efast um það hvort það hafi verið rétt ákvörðun á sínum tíma, hvort ekki hefði mátt fá meira fyrir peninginn þar. En svona var þetta og ég tel að halda því fram að höfuðborgarsáttmálinn sé ekki fjármagnaður eða ekki rétt að honum staðið — þá er mjög eðlilegt að hafa svona höfuðborgarsáttmála vegna þess að sveitarfélagavegirnir og þéttbýlið kalla á samninga milli ríkis og sveitarfélaga. Þetta er að erlendri fyrirmynd. (Forseti hringir.)
Varðandi 2G og 3G þá er verið að taka upp 5G og það eru fyrst og fremst fjarskiptafyrirtæki sem eru að vinna í því. Ríkisvaldið er að koma þar inn í þar sem eru markaðsbrestir, m.a. á stofnvegum og líka á tengivegum, (Forseti hringir.) og við stefnum að því að það verði 5G-samband á öllum stofnvegum landsins á þessu kjörtímabili.