157. löggjafarþing — 79. fundur,  5. mars 2026.

samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins.

[10:46]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S):

Frú forseti. Undanfarna mánuði hefur frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra um launavísitölu verið til umfjöllunar hér í þinginu og sætt gagnrýni, ekki bara okkar í stjórnarandstöðunni heldur einnig fjármálaráðs, fjármálaráðuneytisins, Samtaka atvinnulífsins, ASÍ, Seðlabanka Íslands og nú síðast í gær Læknafélags Íslands. Nú er svo komið að málið hefur verið afgreitt úr velferðarnefnd Alþingis í ágreiningi. Vinnubrögðin í nefndinni hafa reyndar verið býsna sérstök en meiri hluti nefndarinnar greiddi atkvæði gegn því að við í minni hlutanum fengjum gögn frá stjórnvöldum, eins og við eigum rétt á samkvæmt þingsköpum, og hafnaði því að Seðlabanki Íslands kæmi fyrir nefndina.

Tilefni fyrirspurnar minnar til hæstv. mennta- og barnamálaráðherra, formanns Flokks fólksins, eru misvísandi skilaboð ráðherra og þingmanna ríkisstjórnarflokkanna þar sem ýmist er slegið í eða úr hvað þýðingu frumvarpsins varðar. Þá er ég að velta fyrir mér efnislegu inntaki frumvarpsins. Hver verða réttaráhrif frumvarpsins? Auðvitað er það svo að fjárveitingavaldið liggur alltaf hjá Alþingi við gerð fjárlaga. En hvaða skuldbindingar skapar frumvarpið gagnvart borgurunum í landinu? Ég spyr því hæstv. ráðherra: Er frumvarpinu ætlað að tryggja að bætur almannatryggingakerfisins hækki á hverju ári til samræmis við launavísitölu en þó aldrei minna en verðlag, eins og segir í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, eða er hér ekki um eiginlega breytingu að ræða á núverandi fyrirkomulagi, þ.e. að hér eftir sem hingað til muni stjórnvöld hafa svigrúm til að ákvarða fjárhæð greiðslna hverju sinni eftir því sem þau telja efnahaginn leyfa?