birgðastaða eldsneytis á Íslandi.
Virðulegi forseti. Í vikunni minntist hæstv. orkumálaráðherra á mikilvægi þess að huga að því að efla birgðastöðu eldsneytis á Íslandi — að huga að því, eins og það væri einhver framtíðarmúsík sem þyrfti að skoða og meta. Staðreyndin er hins vegar þessi: Lágmarksbirgðir eldsneytis á Íslandi eru meiri háttar öryggismál, þjóðaröryggismál. Við vitum það í samhengi við samgöngur, við vitum það í samhengi við fæðuöryggi að ef aðfangakeðjur raskast þá hefur það gríðarlega mikil áhrif á Ísland. Þetta er eitthvað sem þjóðaröryggisráð hefur fjallað um. Þetta er eitthvað sem Alþjóðaorkumálastofnunin hefur bent á. Flest Evrópuríki eru með 90 daga birgðaskyldu á eldsneyti. Hvað erum við með? Við erum með núll daga hér á landi þrátt fyrir að við séum eyja og við eigum einungis birgðir í nokkrar vikur í senn. Þegar ég starfaði sem orkumálastjóri vöktum við athygli á þessu í samhengi við eldsumbrot á Reykjanesskaga. Af hverju? Jú, vegna þess að þegar innviðum Svartsengis var ógnað þá sáum við fyrir að olíunotkun fyrir húshitun gæti aukist hratt. Sömuleiðis var innrásin í Úkraínu áminning um að við yrðum að innleiða slíka skyldu. Tillögum var skilað inn til ráðuneytis orkumála árið 2022 og vinna var langt komin. Það var þess vegna sem ég skoraði á hæstv. ríkisstjórn opinberlega í bréfi í september 2025 að tryggja þessa birgðaskyldu. Svarið sem ég fékk var að málið væri í góðum farvegi. En hver er staðan í dag? Er eldsumbrotum lokið á Reykjanesskaga og hættan fyrir hitaveitu, Svartsengi, er hún liðin hjá? Nei. Hafa heimsmálin róast með þeim hætti að hægt væri að afskrifa nauðsyn þess að tryggja lágmarksbirgðastöðu eldsneytis? Nei. Þvert á móti hefur spenna í heimsmálum aukist, í samskiptum NATO og Bandaríkjanna, átök í Evrópu stigmagnast, (Forseti hringir.) stríðið við olíuríkið Íran sem nú er í gangi o.s.frv. (Forseti hringir.) Á meðan allt þetta gerist þá segir ráðherra orkumála að olíubirgðir séu eitthvað sem huga þurfi að. Þess vegna spyr ég hæstv. ráðherra beint: Mál olíubirgða er ekki á þingmálaskrá. (Forseti hringir.) Hvenær er fyrirhugað að frumvarp sem tryggir lágmarksbirgðir komi hér inn í þingið? Hver er tímalína málsins?