birgðastaða eldsneytis á Íslandi.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og vissulega ef hugað var ekki nákvæmlega að þessu þá er það leitt. En inntakið er samt það sama. (Umhvrh.: Nei. )Hæstv. ráðherra segir að það sé ekki á dagskrá fyrr en á næsta þingi sem þýðir að málið er einfaldlega í einhvers konar undirbúningi. Það eru djúp vonbrigði því það er einmitt staða heimsmálanna eins og hún birtist í dag sem sýnir okkur að við þurfum að ljúka þessu máli. Mér finnst stundum þegar við erum að ræða um þjóðaröryggismál að þá sé eins og ríkisstjórnin sé að vinna þau mál með því að funda, með því að ræða við fjölmiðla en ekki með því að vinna verkin sem fela í sér að tryggja að grundvallarmál, eins og olíubirgðir í landinu sem eru mikilvægar fyrir flug, sem eru mikilvægar fyrir landbúnað, sem eru mikilvægar fyrir sjávarútveginn, séu í lagi. Mér finnst þetta vera skref eitt, skref eitt og því mun ég styðja hæstv. ráðherra og vinna með honum í því vilji hann koma með mál hér fyrr inn í þingið.
En ég spyr að seinna sinni. Annað frumvarp sem tengist raforkuöryggi almennings er ekki á dagskrá. Ég mun flytja þingsályktunartillögu þess efnis síðar í dag. Hvenær ætlar hæstv. ráðherra að setja þau mál, raforkuöryggi almennings, á dagskrá?