birgðastaða eldsneytis á Íslandi.
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður ætti auðvitað að átta sig á því að við getum ekki vippað upp 90 daga neyðarbirgðum af olíu, með milljarða kostnaði, einn, tveir og þrír. Það gerist ekki þannig. Þetta er mál sem ég hefði vissulega kosið að hefði verið komið lengra í undirbúningi þegar ég kom inn í ráðuneytið. En við erum að gera okkar besta til að klára þetta mál og eins og ég nefndi þá geri ég ráð fyrir að við leggjum fram frumvarp um það á næsta löggjafarþingi.
Varðandi raforkuöryggið þá byrjuðum við auðvitað á því strax, og það var eitt af fyrstu frumvörpunum sem ég lagði fram og við kláruðum á vorþingi í fyrra, að lögfesta forgang almennings þegar uppi er raunverulegur raforkuskortur og þegar kemur til skömmtunar. Þar lögfestum við líka ákveðin orkuöryggisviðmið og við erum að vinna að reglugerð á þeim grundvelli. Næsta og stærra skref lýtur að almennari forgangi, (Forseti hringir.) óháð því nákvæmlega hvaða staða er uppi í orkukerfinu, og frumvarp þess efnis verður lagt fram á næsta löggjafarþingi.