157. löggjafarþing — 79. fundur,  5. mars 2026.

leigubifreiðaakstur.

84. mál
[11:17]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Við erum öll sammála um mikilvægi þess að leigubifreiðaakstur gangi vel fyrir sig, að þar sé öryggi farþega tryggt og aðgengi að leigubifreiðum er líka visst öryggisatriði. Það aðgengi og þær breytingar sem voru gerðar síðast voru einmitt til að tryggja öryggi þar, sérstaklega ungs fólks hér í miðbænum og annað slíkt. Það þýðir ekki að koma hér með lagabreytingar til þess að vera með falskt öryggi. Falskt öryggi hjálpar ekki neinum og tryggir engum öryggi. Því getum við ekki stutt þetta mál þar sem það er ekki verið að breyta neinu raunverulegu öryggi heldur hefur hæstv. innviðaráðherra, sem hann upplýsti hér við umræðu í þessu máli fyrr þegar það kom til umræðu, ekki nýtt sér þær 11 reglugerðarheimildir sem eru í núverandi löggjöf. Það hefur komið nýlega í ljós að meira að segja einstaklingur sem var með brot fyrir 12 árum síðan fékk ekki að endurnýja leyfi sitt. Svo ströng eru þessi lög nú fyrir, svo strangt er það. En hvað hefur hæstv. ráðherra gert til að afturkalla þau leyfi sem voru gefin út gegn anda laganna? Hvað hefur hann gert til þess?