leigubifreiðaakstur.
Virðulegur forseti. Við styðjum þetta mál. Það er mikilvægt að bæta umgjörðina nú þegar reynsla hefur komið á löggjöfina. Ég veit að þetta er einungis fyrsta skrefið og ég hlakka til að vinna áfram að breytingum sem geta tryggt öryggi en líka eflt samkeppni á þessum mikilvæga þjónustumarkaði sem margir ólíkir notendur treysta á.
Ég vil hins vegar líka taka undir með þeim sem hafa nefnt það að hæstv. ráðherra hefur ýmis tækifæri til að gera breytingar undir núverandi reglugerðarumhverfi. Ég hvet hæstv. ráðherra til að horfa á þau sömuleiðis. Það þarf ekki að öllu leyti að bíða eftir lagabreytingum til að gera betrumbætur í þessu máli.