leigubifreiðaakstur.
Frú forseti. Leigubifreiðaakstur er ómissandi sólarhringsþjónusta fyrir almenning sem tengir saman aðra samgöngumáta og kemur að gagni þegar aðrar samgöngur bresta. Þessi þjónusta er ekki síst mikilvæg fyrir viðkvæma hópa, svo sem fatlaða, aldraða og ferðamenn sem ekki hafa aðgang að öðrum ferðamáta. Með frumvarpinu sem við erum að fara að samþykkja eru stigin hænuskref í þá átt að tryggja betur öryggi þjónustunnar þar sem bifreiðastöðvar veita aðhald sem og að stuðla að því að réttmætir viðskiptahættir séu stundaðir í greininni. Ég styð þetta frumvarp að sjálfsögðu. Mér finnst þetta hænuskref í rétta átt. Ég hvet ráðherra áfram til dáða og vonast til að hann herði áframhaldandi vinnu við að tryggja öryggi farþega í leigubílum.