Staða íslenskrar tungu.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að nota tækifærið og þakka hæstv. ráðherra fyrir að taka þátt í þessari umræðu með mér í dag sem ég tel einkar brýna. Íslenskan er ekki bara tungumál, hún er grunnurinn að sjálfsmynd okkar sem þjóðar. Þess vegna setti Alþingi lög um stöðu íslenskrar tungu og samþykkti aðgerðaáætlun til að efla hana. Í þeim lögum er skýrt kveðið á um ábyrgð stjórnvalda; að tryggja að hægt sé að nota íslensku á öllum sviðum samfélagsins. En þá vaknar einföld spurning: Hvernig hefur þeirri ábyrgð verið sinnt? Er íslenskan í raun í forgangi hjá stjórnvöldum eða aðeins í orði?
Virðulegur forseti. Íslensk tunga er ein af grunnstoðum íslensks samfélags; hún er burðarás menningar okkar, bókmennta og sjálfsmyndar þjóðarinnar. Það er því engin tilviljun að Alþingi hafi sett þessi sérstöku lög um stöðu íslenskrar tungu þar sem kveðið er á um að íslenska sé þjóðtunga Íslendinga og opinbert mál á Íslandi. Í sömu lögum er jafnframt lögð skýr skylda á stjórnvöld að tryggja að unnt sé að nota íslensku á öllum sviðum íslensks þjóðlífs. Það er því ekki aðeins menningarlegt verkefni að standa vörð um íslenskuna, það er lagaleg og pólitísk ábyrgð stjórnvalda. Í maí 2025 samþykkti Alþingi aðgerðaáætlun í málefnum íslenskrar tungu til ársins 2026. Ég þekki það mál nokkuð vel og var þá formaður þeirrar nefndar sem fjallaði um málið. Það var mikil samstaða um það og það tók einhverjum breytingum í meðförum nefndarinnar. Markmiðið var skýrt: Að styrkja stöðu íslenskunnar í samfélagi sem er sífellt alþjóðlegra og stafrænna.
En spurningarnar vakna. Hvernig hefur verið unnið eftir þessari áætlun? Hvaða aðgerðir hafa verið framkvæmdar og hvernig meta stjórnvöld hvort þær séu að skila árangri? Þessar spurningar verða sérstaklega áleitnar þegar litið er til fjárlaga. Í fyrsta stefnumarkandi plaggi ríkisstjórnarinnar, fjárlagafrumvarpinu, var ekki gert ráð fyrir ýmsum verkefnum sem snúa að eflingu íslenskunnar. Þeir sem hingað flytja þurfa að hafa raunhæfan aðgang að íslenskukennslu og hvata til að læra málið. Tungumálið er lykill að þátttöku í samfélaginu á vinnumarkaði, í námi og í daglegu lífi. Í umræðum um fjárlög hefur einnig komið fram gagnrýni á að dregið hafi verið úr fjárveitingum til íslenskukennslu fyrir nýbúa. Áherslur síðustu ríkisstjórnar til málaflokksins með auknum fjárframlögum voru dregin til baka. Slíkt vekur spurningar þegar á sama tíma er lögð áhersla á mikilvægi þess að efla íslenska tungu.
Í nefndaráliti fjárlaganefndar kom fram að Alþingi sjálft þyrfti að grípa inn í og bæta úr. Þar má nefna aukin framlög til Bókasafnssjóðs rithöfunda, stuðning við handritaútgáfu Hins íslenska fornritafélags og ekki síst aukin framlög til íslenskukennslu fyrir nýbúa. Það vekur upp ákveðnar spurningar þegar Alþingi þarf að hlaupa undir bagga í málaflokki sem samkvæmt lögum og stefnu stjórnvalda á að vera í forgangi. Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra: Telur hann að fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar hafi endurspeglað þá ábyrgð sem stjórnvöld bera samkvæmt lögum um íslenska tungu?
Virðulegur forseti. Við eigum líka að gæta þess að gera ekki alla umræðu um stöðu íslenskunnar að einhverju innflytjendamáli. Staða tungumálsins ræðst ekki síst af því stafræna umhverfi sem við lifum í. Ég sé það heima hjá mér. Íslenskukunnáttu 18 ára sonar míns er oft og tíðum ábótavant en það hefur ekkert að gera með fjölda útlendinga á Íslandi. Það snýst fyrst og fremst um það málumhverfi sem ungmennin búa í, allt það framboð af lesefni og öðru efni á netinu sem er iðulega á ensku.
Virðulegur forseti. Undanfarið hafa margir lýst áhyggjum af stöðu tungunnar. Listamaðurinn Bubbi Morthens sagði nýlega að hann hefði áhyggjur af því að ekki hefði verið brugðist nægilega skýrt við þróuninni. Ég er ekki endilega sammála öllu í hans niðurstöðu en umræðan sýnir að margir hafa áhyggjur af stöðu íslenskunnar og vilja sjá skýrari aðgerðir. Þess vegna vil ég að lokum spyrja hæstv. ráðherra nokkurra skýrra spurninga: Telur ráðherra nauðsynlegt að grípa til frekari aðgerða til að standa vörð um íslenska tungu í stafrænu og alþjóðlegu umhverfi nútímans? Hver er staðan á framkvæmd aðgerðaáætlununar Alþingis um íslenska tungu sem gildir til ársins 2026? Hvernig mæla stjórnvöld stöðu íslenskunnar þannig að við getum séð hvort aðgerðir stjórnvalda skili raunverulegum árangri? Og að lokum: Sú aðgerðaáætlun sem nú er í gildi rennur út á þessu ári. Hyggst ráðherra leggja fram nýja aðgerðaáætlun á þessu sviði og ef svo er, hvenær er hennar að vænta? Telur ráðherrann mikilvægt að slíkar langtímaáætlanir séu til staðar?
Virðulegur forseti. Íslenskan lifir aðeins ef hún er notuð; í skólum, í vísindum, í tækni og í daglegu lífi. Það er sameiginlegt verkefni okkar allra að standa vörð um það. (Gripið fram í: Heyr, heyr. )