Staða íslenskrar tungu.
Virðulegur forseti og hv. málshefjandi. Kærar þakkir fyrir að taka upp þessa mikilvægu umræðu. Það er auðvitað um fátt skemmtilegra að tala og líka fátt mikilvægara. Ræðutíminn er hins vegar það naumt skammtaður að til að svara fyllilega þeim spurningum sem mér bárust skriflega þá afhendi ég hv. þingmanni hér á eftir fyllri svör, en ég ætla að drepa aðeins á því helsta. Ég held að það sé alveg ljóst, eins og þingmaðurinn kemur inn á, að við stöndum sífellt frammi fyrir nýjum og nýjum áskorunum þegar kemur að íslenskri tungu. Annars vegar er fólk sem hingað flytur og gerir samfélaginu okkar gagn en er með annað móðurmál og svo hins vegar auðvitað þessi tækni sem við erum að glíma við.
Íslenskan hefur oft staðið andspænis mjög erfiðri stöðu. Jónas Hallgrímsson og félagar í Fjölni stóðu auðvitað náttúrlega dyggilega vörð á sinn hátt þegar íslenskan var að smitast óþarflega mikið af danskri tungu. Nú eru áskoranir aðrar og við svörum auðvitað bara fyrstu spurningunni játandi, um það hvort ástæða sé til að standa sérstakan vörð um íslenska tungu í þessu alþjóðlega umhverfi. Það þarf auðvitað að gera það og ég get nefnt dæmi um hvað við erum að gera. Nú er t.d. í gildi sérstök aðgerðaáætlun í málefnum íslenskrar tungu fyrir árin 2024–2026 og ég get svarað því: Að sjálfsögðu munum við leggja fram nýja aðgerðaáætlun svona undir lok þessa tímabils. Þessi áætlun er einkum hugsuð fyrir tvo hópa; annars vegar fyrir börn og ungmenni og hins vegar fyrir innflytjendur og þá sem læra íslensku sem annað mál.
Varðandi það sem kom fram hjá hv. þingmanni vil ég bara segja að það minnkuðu ekki fjármunirnir í mínu ráðuneyti til að mæta íslenskunni eða íslenskukennslu. Það urðu breytingar annars staðar, m.a. vegna fækkunar á þeim sem koma hingað til lands. Íslenskan á hins vegar lögheimili í mörgum ráðuneytum og það er verið að vinna að því núna undir verkstjórn forsætisráðuneytisins að samhæfa þessa vinnu þannig að hún nýtist sem best og það er fullur vilji til að mæta þessari áskorun. Það er sérstakur kafli í aðgerðaáætlun í málefnum innflytjenda sem er í samráði núna og fjallar um þetta.
Núverandi máltækniáætlun stjórnvalda er svo önnur í röðinni og er afsprengi aðgerðaáætlunar í málefnum íslenskrar tungu. Fyrsta áætlunin náði til áranna 2018–2022 og þar var aðalmarkmiðið að stuðla að því að byggja þá innviði sem þarf til að íslenskan verði gjaldgeng í tækniheiminum. Það verður að segjast eins og er að það hefur tekist býsna vel og var unnið að því, m.a. í tíð fyrrverandi stjórnvalda, að sinna því með máltækniáætlun 1. Nú er íslensk tunga því gjaldgeng í fjölmörgum gervigreindartólum, sem er auðvitað mjög mikilvægt. UNESCO hefur verið í samstarfi við okkur um það hvernig við getum stuðlað að framgangi íslensku leiðarinnar víðar um heim, jafnvel þar sem undir eru tungumál sem eru töluð af milljónum og milljónatugum en eiga undir högg að sækja af ýmsum öðrum ástæðum. Við höldum því auðvitað áfram með þetta og með tilkomu gervigreindarinnar þurfum við auðvitað að halda íslenskunni við inni í þeim tækjum sem hún er komin og koma henni inn í ný tæki einnig. Þetta er því viðvarandi verkefni og ég deili ekki endilega áhyggjum, hvorki Bubba Morthens né annarra, af því að íslenskan sé í einhverri bráðri hættu. Hins vegar er ágætt að fá svona áhrifamikið fólk til að tala um hlutina á hreinni íslensku vegna þess að hún mun vissulega verða í hættu ef við sláum slöku við. Það eru sífelldar nýjar ógnir og áskoranir sem á okkur dynja. En það er með íslenskuna eins og svo margt annað í heiminum að það er búið að spá falli hennar mjög oft. Ef við stöndum vaktina, ef við sinnum þeim verkefnum sem m.a. hv. þingmaður kemur inn á og við erum að gera, þá hef ég ekki miklar áhyggjur af viðgangi íslenskunnar.