157. löggjafarþing — 79. fundur,  5. mars 2026.

Staða íslenskrar tungu.

[13:15]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf):

Frú forseti. Já, þetta er góð umræða og ég vil byrja á að þakka málshefjanda og ráðherra fyrir að opna þessa umræðu hér. Ég held að það séu ekki aðeins stjórnvöld sem þurfi mögulega að vera á vaktinni. Og jú, jú, frekari aðgerðir, ég held að við þurfum alltaf að vera mjög meðvituð, en líka bara við sjálf, að það er kannski rétt að byrja á að líta í eigin barm. Það er áhyggjuefni hversu við Íslendingar upp til hópa grípum til enskunnar oft og iðulega, bæði í daglegu tali og í samskiptum okkar við erlenda aðila sem búa hér, jafnvel þótt þeir aðilar hafi búið hér lengi og langi að spreyta sig á íslenskunni. Þar með er þjálfun viðmælandans í íslensku varpað fyrir róða því að við förum bara að tala ensku við fólk af erlendum uppruna án þess nokkuð að athuga hvort það vilji mögulega bara tala íslensku. Þótt fólk eigi erfitt með að tjá sig á íslensku getur það í mörgum tilvikum skilið íslenskuna. Nú er ég að tala um fólk af erlendum uppruna sem er búið að vera hér mislengi og það kann auðvitað að vera að margir séu ragir við að nota tungumálið enda finnst mörgum það flókið. En þá verðum við að hjálpa þessu fólki að yfirstíga þessa hindrun og hvetja það og hrósa og umfram allt tala íslensku við það. Við verðum einnig að senda skilaboð til fólks af erlendum uppruna sem ætlar að búa á Íslandi til frambúðar að því er nauðsynlegt að læra tungumálið ef það á að geta notið sín til fulls. Íslenskukunnáttan mun auka möguleika á framgangi í íslensku samfélagi. En markmiðið er skýrt, eða á að vera skýrt; að á Íslandi tölum við íslensku og Íslendingar upp til hópa vilja fá að tala málið sitt í sínu eigin heimalandi, hvort sem það er að fara á veitingastaði eða í verslanir. Ég held líka að við séum langflest boðin og búin til að aðstoða fólk af erlendum uppruna til að komast sem hraðast inn í málið. En þá er lykilatriði að tala íslensku við fólkið og bara að við tölum íslensku alla daga alltaf við alla þegar við erum hérna heima á Íslandi.