157. löggjafarþing — 79. fundur,  5. mars 2026.

Staða íslenskrar tungu.

[13:17]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F):

Virðulegi forseti. Með leyfi þínu vil ég vitna í eftirfarandi ljóð:

Sérhver draumur lifir aðeins eina nótt.

Sérhver alda rís en hnígur jafnan skjótt.

Hverju orði fylgir þögn — og þögnin hverfur allt of fljótt.

Svo heyrum við í viðlaginu:

Líttu sérhvert sólarlag, sem þitt hinsta væri það.

Því morgni eftir orðinn dag enginn gengur vísum að.

Er eitthvað fallegra en þetta ljóð? Þetta er eftir, eins og margir þekkja, Braga Valdimar Skúlason. Þetta ljóð sýnir á svo marga vegu hvað tungumálið okkar felur í sér. Það slær á nótur sálarinnar. Myndmálið hreyfir við okkur. Þegar þetta lag er spilað, oft á sorgarstundum, þá ná hugur og hjörtu fólks saman á einhvern yfirnáttúrulegan hátt. Það væri eflaust hægt að segja sömu skilaboð með einhverju einföldu slagorði, eins og t.d. lífið er núna, eða hægt væri að ná þessu saman með gervigreind, í gegnum ChatGPT, en áhrifin, hrifáhrifin, yrðu ekki þau sömu. Orðsnilld Braga Valdimars sýnir okkur að tungumálið er ekki bara hreinn og beinn samskiptamáti. Það er list og tjáningarform líkt og birtist í sagnahefð og ritlist. Í hraða nútímans, þar sem fjárhagslegur ábati og skilvirkni hafa forgang, gefst oft lítill tími til að huga að innihaldsríkum samtölum eða bréfaskriftum þar sem dýpt orða og fjölbreytni þeirra er nýtt til hins ýtrasta. Við erum að horfa á hraðann, að ná að vera í samskiptum sem oftast og sem hraðast. Á sama tíma þegar við hlustum á slík lög og lesum slík ljóð þá finnum við hversu miklu máli fjölbreytt og litríkt tungumál skiptir okkur. (Forseti hringir.) Það stækkar og dýpkar allt. Það er þess vegna sem það skiptir svo miklu máli. Ég hvet hæstv. ráðherra og þakka málshefjanda, Bryndísi Haraldsdóttur, fyrir hér í dag. (Forseti hringir.) Það er þess vegna sem skiptir svo miklu máli að fjárfesta í tungumálinu okkar á fjölbreytta vegu.