157. löggjafarþing — 79. fundur,  5. mars 2026.

Staða íslenskrar tungu.

[13:25]
Horfa

Anna María Jónsdóttir (Sf):

Frú forseti. Það er mjög gott að við séum að ræða stöðu íslenskunnar í sérstakri umræðu og vil ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir að hefja þessa umræðu og hæstv. ráðherra Loga Einarssyni fyrir að vera hér með okkur til að ræða þetta. Spurningin um stöðu íslenskunnar er víðfeðm og því vil ég einskorða umfjöllun mína hér við viðhorf til íslenskunnar en viðhorf segir til um þann grundvöll sem umræðan sem við erum að taka núna byggir á. Um mitt ár 2024 var því ljóstrað upp að 97% landsmanna bera jákvæðar tilfinningar í brjósti til íslenskunnar. Það ætti sannarlega að vera okkur hvatning og tilefni til bjartsýni en íslenskan er, eins og önnur tungumál, í stöðugri þróun. Breytingar verða á einstökum beygingum og setningagerð; unglingar beita tungutaki sem við eigum stundum erfitt með að skilja og ný orð eru tekin inn í málið, stundum sem tökuorð og oft sem heimasmíðuð nýyrði fyrir ýmsar starfsgreinar og fög. Umræðan um íslenskuna er mikil, hún hefur alltaf verið mikil. Oftar en ekki er hún upplýsandi og styðjandi. Börn og ungmenni, sá hópur sem ég er í daglegum samskiptum við, hafa stundum kvartað yfir því að lítil tiltrú á metnaði þeirra til að læra og beita íslensku sé óverðskulduð. Í þessu samhengi er vert að taka fram að ungdómsárin eru mótunarár. Þetta er tíminn sem ungmennin okkar eru að finna út úr því hvert þau vilja stefna. Oftar en ekki að finna þau þá til ábyrgðar á lokasprettinum í eigin námi og þar með talið mikilvægi þess að hafa góð tök á námstungumálinu sínu, þ.e. íslenskunni. Við þurfum að hafa augun opin fyrir því sem vel er gert, sem þýðir þó ekki að við lokum augunum fyrir þeim þáttum sem gefa tilefni til að bregðast við. Styðjum áfram við rannsóknir sem gerðar eru á íslenskunni á sama tíma og við hugum að því hvernig best er að efla og auka íslenskt málumhverfi í skólum og í samfélaginu öllu.