athugasemdir varðandi samráð og aðildarviðræður við ESB.
Virðulegur forseti. Því miður er það orðin regla, ekki undantekning, að það þarf að gera athugasemdir við framgang hæstv. ríkisstjórnar þegar kemur að Alþingi Íslendinga. Ég vil vekja athygli ykkar á því að hér kom hv. stjórnarþingmaður og túlkaði þingskapalögin með þeim hætti að allt það sem hefur verið gert frá því að þetta fór inn í þingskapalögin varðandi samráð við utanríkismálanefnd er orðinn dauður bókstafur. Ég held, virðulegi forseti, að ef hér er forysta þingsins sem er umhugað um þingið þá tel ég einsýnt að virðulegur þingforseti setjist nú niður með hæstv. ríkisstjórn og útskýri fyrir henni hvernig vinnubrögðin hafa verið hér á þessum vinnustað svo lengi sem elstu menn muna vegna þess að þetta er að fara í fullkomnar ógöngur.