157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

athugasemdir varðandi samráð og aðildarviðræður við ESB.

[15:16]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Já, ég ætla að fá að taka undir þá gagnrýni sem fram hefur komið hér frá stjórnarandstöðu. Mig langar að nefna sérstaklega þetta varðandi samráðsleysið. Það er æpandi hvað þessi ríkisstjórn hefur ákveðið að virða að vettugi reglur um samráð áður en mál koma hingað inn í þingið. Ég er reyndar með fyrirspurn til hæstv. forsætisráðherra um einmitt þetta mál — það eru reyndar þrír mánuðir síðan ég lagði fyrirspurnina fram á meðan ráðuneyti hafa almennt um þrjár vikur til að svara slíkum fyrirspurnum — einmitt um það hversu mörg mál hafa ekki farið í samráð eða ekki notið fulls samráðs. Ég er mjög hissa á því að ríkisstjórnin hafi ekki ákveðið að setja þetta stóra mál sitt í samráðsgátt. Ég hygg til að mynda að þá værum við að ræða athugasemdir sem höfðu komið fram varðandi skýrleika, varðandi kostnaðarmat sem er ekki neitt eða varðandi dagsetninguna sem er líka mjög sérkennileg.

Virðulegur forseti. Síðan ég kynntist hæstv. utanríkisráðherra, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, og settist á þing 2016 þá hefur hún ítrekað sagt að fólk vilji ekki ræða um Evrópusambandið. Þess vegna kemur mjög á óvart að hæstv. ráðherra hafi ekki viljað mæta (Forseti hringir.) fyrir utanríkismálanefnd í morgun til að ræða einmitt það. Nú erum við að ræða Evrópusambandið. Við ættum öll að vera rosalega glöð yfir því, er það ekki?