157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

athugasemdir varðandi samráð og aðildarviðræður við ESB.

[15:20]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Forseti. Ég vek athygli hæstv. forseta á því að hann á mikið verkefni fyrir höndum því ósvífni hæstv. utanríkisráðherra virðist vera takmarkalaus. Ekki nóg með það að hæstv. ráðherra neiti að mæta fyrir utanríkismálanefnd og kynna málið (Gripið fram í.)fyrr en að lokinni fyrri umræðu heldur kemur hæstv. ráðherra hér upp og segir að það þurfi í rauninni ekkert að ræða við utanríkismálanefnd af því að fallegasta samráðið sé samráðið við þjóðina. Þetta segir ráðherra sem er búin að vera á endalausum fundum í Brussel að plotta á bak við þjóðina, að undirbúa aðgerð sem þjóðin fékk fyrst að heyra eftir að erlendir fjölmiðlar höfðu upplýst um það eftir heimildarmönnum sínum í Brussel. (Gripið fram í.)Þetta er þjóðin sem hæstv. ráðherra þykist bera svo mikla virðingu fyrir að fegurð samráðs við hana trompi lagalega skyldu hæstv. ráðherra gagnvart Alþingi.