athugasemdir varðandi samráð og aðildarviðræður við ESB.
Virðulegur forseti. Það er óþolandi fyrir þingmenn að sitja undir þessum skætingi sem hæstv. utanríkisráðherra lætur yfir þingheim ganga hér með vísun til samráðs við þjóðina þegar ekki bara í þingskapalögum er gert ráð fyrir samráði eða í lögum heldur sérstaklega í samþykktum ríkisstjórnarinnar. Í samþykktum ríkisstjórnarinnar frá árinu 2023 er sérstaklega kveðið á um samráð, ekki bara í einni grein heldur tveimur. Þannig er sérstaklega fjallað um það í 3. gr. að það skuli hafa opið samráð við almenning og gefa almenningi kost á umsögnum og ábendingum. Þetta eigi þó ekki við ef sérstök rök mæla gegn slíkri birtingu. Ég hlýt að spyrja: Hvaða sérstöku rök hafa legið til þess að setja þetta mál ekki í samráð? Það er sérstaklega nefnt í 9. gr. samþykktar ríkisstjórnar Íslands að frumvarp eða þingsályktunartillaga sem varðar málefnasvið annars ráðuneytis skuli bera sérstaklega undir viðkomandi ráðuneyti á undirbúningsstigi og veita almenningi tækifæri til þess að veita umsögn um málið og hafa samráð þannig við almenning. Hvaða brýnu rök stóðu til þess að viðhafa ekki þessar reglur sem sjálf ríkisstjórn Íslands setti sér árið 2023? Ég hlýt að spyrja að því og óska eftir svörum við því.