157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

athugasemdir varðandi samráð og aðildarviðræður við ESB.

[15:26]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Hæstv. utanríkisráðherra segir að þetta sé margboðað mál. Hv. þingmaður, þingflokksformaður Samfylkingar, Guðmundur Ari Sigurjónsson, kallar hér fram í að þetta sé í stjórnarsáttmálanum. Það hittist bara þannig á að þetta er ekki í þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar. Það er ekki í þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar og var þess vegna ekki partur af þeirri yfirferð sem þingmenn í utanríkismálanefnd fengu við upphaf þings þegar það kom saman í september. Að láta að því liggja að þetta sé bara eitthvað sem allir máttu eiga von á vegna þess að þetta stóð í stjórnarsáttmálanum, eða hvað sem þau kalla þetta núna, er því alger útúrsnúningur. Ég bara bið virðulegan forseta að hlutast til um þetta og reyna að koma skikki á það með hvaða hætti ríkisstjórnin leggur hér mál fram í þinginu því það er ekki út af engu sem ríkisstjórn kynnir þingmálaskrár sínar og fer með kynningu þingmála fyrir sinni fagnefnd með þeim hætti sem gert er. Ekkert af því átti við um þetta mál. Sérstaklega þess vegna er eðlilegt að þetta mál sé rætt við hv. utanríkismálanefnd áður en það kemur hingað til meðferðar í þinginu.