athugasemdir varðandi samráð og aðildarviðræður við ESB.
Virðulegi forseti. Keisarans skegg. Það er nafn stjórnarliða á lögum í landinu, keisarans skegg, og á við einhverja ekki-skeptísku frá Akureyri. Það stendur skýrt í lögunum fyrir fram; meiri háttar utanríkismál. Hér kemur hæstv. utanríkisráðherra og talar um fallegt samráð. Það er nýtt hugtak. Hvað er ljótt samráð, hæstv. utanríkisráðherra? Er það að fylgja lögum? (Gripið fram í.) Er hæstv. utanríkisráðherra farinn að titra, kannski aðeins af ástæðu, að kalla þetta mál innanríkismál? Því að hæstv. ráðherra má lifa með því að það er ekki lögmætt samráð, hvorki við almenning né hv. utanríkismálanefnd, en fallega samráðið er við bjúrókrata í Brussel.
Virðulegi forseti. Það er ekki (Forseti hringir.) fallegt að fara á bak við þjóðina og plotta við bjúrókrata í Brussel og við vitum það vegna þess að fyrstu fregnir af þessu máli, fyrstu fregnir, (Forseti hringir.) virðulegi forseti, komu frá Brussel.