athugasemdir varðandi samráð og aðildarviðræður við ESB.
Virðulegur forseti. Þá erum við með skilaboðin frá hæstv. ráðherra, Loga Einarssyni. Við eigum bara að hlusta á útvarpið til að fá upplýsingar um mikilvæg mál. Það er merkilegt að þau skuli ekki bara segja okkur að við þurfum ekki að mæta í vinnuna. En,virðulegur forseti, þetta mál ber allt yfirbragð Icesave-deilunnar og vinnubragðanna sem áttu sér stað í henni, þetta minnir mjög á hana. Þá var þetta sama fólk sem vildi hraða í gegn allri niðurstöðu. Þá mátti reyndar almenningur ekki segja sína skoðun. Við lögðum til þjóðaratkvæðagreiðslu þá en það mátti ekki. En almenningur tók til sín völdin.
Virðulegur forseti. Ég óttast að þessi vinnubrögð sem hæstv. utanríkisráðherra viðhefur í þessu máli núna gagnvart utanríkismálanefnd og þinginu séu forsmekkurinn að vinnubrögðum í nefndarstörfunum. Við höfum ítrekað þurft að koma hingað upp og kvarta yfir því hvernig yfirgangi er beitt í nefndum þegar við erum að biðja um gestakomur og reyna að fjalla ítarlega um mál. Ég vil því beina því til virðulegs forseta að í þessu máli brýni hann sérstaklega fyrir forystu utanríkismálanefndar að vanda til málsmeðferðar (Forseti hringir.) þannig að við þurfum ekki að koma hér upp vegna þess að okkur sé ítrekað neitað um að fá mikilvæga gesti á fundi, þannig að það sé hægt að fjalla af alvöru um þessi mál. (Forseti hringir.) Þetta er alvörumál, virðulegur forseti, og það má ekki líða að slík dónavinnubrögð sem hafa verið viðhöfð í nefndum undanfarið verði viðhöfð í þessu mikilvæga máli.