157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

athugasemdir varðandi samráð og aðildarviðræður við ESB.

[15:41]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Frú forseti. Ekki gera lítið úr þinginu, segir hæstv. utanríkisráðherra, og dylgjar jafnframt um að stjórnarandstaðan sé hrædd við þjóðina, dylgjar um það. Ég veit ekki hver það er sem er hræddur við þjóðina annar en hæstv. utanríkisráðherra sjálfur. Hér er það utanríkisráðherrann sem gerir lítið úr Alþingi Íslendinga. Það er utanríkisráðherrann sjálfur sem gerir lítið úr Alþingi Íslendinga. Það er nefnilega skylda að eiga samráð samkvæmt 24. gr. þingskapalaga og ég ætla að lesa hana aftur upp þó að það hafi verið gert á fyrri stigum, með leyfi forseta:

„Utanríkismálanefnd skal, auk verkefna sem hún hefur skv. 13. gr., vera ríkisstjórninni til ráðuneytis um meiri háttar utanríkismál enda skal ríkisstjórnin ávallt bera fyrir fram undir hana slík mál jafnt á þingtíma sem í þinghléum, nema brýn nauðsyn banni.“

Hver er þessi brýna nauðsyn sem bannar að slíkt samráð (Forseti hringir.) skuli vera viðhaft? Hæstv. utanríkisráðherra ætti að sjá sóma sinn í því að koma hér upp (Forseti hringir.) og skýra út fyrir þingheimi hver þessi brýna nauðsyn er sem banni þetta samráð.