athugasemdir varðandi samráð og aðildarviðræður við ESB.
Frú forseti. Hv. þingmaður María Rut Kristinsdóttir hélt því fram áðan að það væri ekkert leynimakk í tengslum við þetta mál eins og það liggur fyrir. En þá er hv. þingmaður mögulega búinn að gleyma því að hér í óundirbúnum fyrirspurnum þann 16. febrúar síðastliðinn upplýsti hæstv. forsætisráðherra um það að í kjölfar viðræðna við ónefnda háttsetta embættismenn í Brussel hefði skilningur hæstv. ráðherra verið sá að það væri um eitthvað að semja. Auðvitað er þetta ekkert annað en eitthvert leynimakk sem síðan undirbyggir það með hvaða hætti málið er lagt fram í þinginu núna. Þetta er allt á sömu bókina lært. Þetta er einhver flótti frá eðlilegri meðferð þessa máls. Leynimakkið er augljóst og beinlínis staðfest af hæstv. forsætisráðherra. Auðvitað má forsætisráðherra hverju sinni tala við hvern sem viðkomandi sýnist en að láta að því liggja að það hafi ekki verið nein undirbúningsvinna með háttsettum embættismönnum í Brussel hvað þetta varðar er útúrsnúningur og ég gef mér að hv. þm. María Rut Kristinsdóttir hafi ekki munað eftir þessum óundirbúna fyrirspurnatíma 16. febrúar síðastliðinn.