157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

athugasemdir varðandi samráð og aðildarviðræður við ESB.

[15:46]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég kem hér upp undir fundarstjórn forseta til að lýsa ákveðnum vonbrigðum varðandi framgöngu minni hlutans sem kemur hérna móður og másandi upp í pontu til að þyrla upp ryki og kasta rýrð á þá þinglegu meðferð sem er fram undan. Við erum einfaldlega með einfalda þingsályktunartillögu fyrir framan okkur: Eigum við að leyfa þjóðinni að greiða atkvæði um næstu skref um hvort við viljum halda áfram aðildarviðræðum við ESB eða ekki? Það er sú þingsályktunartillaga sem liggur fyrir. Hér er mikið af myndavélum. Hér eru margir að horfa. Hér eru margir spenntir fyrir umræðunni um það að þjóðin fái loksins tækifæri til að ákveða næstu skref í þessu máli. Fyrir rúmlega tíu árum síðan var þetta tækifæri tekið af þjóðinni þegar ríkisstjórn sem hafði lofað þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna dró umsókn einhliða til baka eða setti á ís, eins og það hefur verið kallað. Núna höfum við tækifæri til að vinda ofan af þessu, færa valdið til þjóðarinnar og treysta þjóðinni fyrir næstu skrefum. Nei, (Forseti hringir.) við skulum koma hingað hlaupandi, móð og másandi og finna allt því til foráttu að þjóðin fái að ráða.