157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

athugasemdir varðandi samráð og aðildarviðræður við ESB.

[15:48]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Frú forseti. Ég bíð enn eftir svari frá forseta hvort forseti ætli að tryggja það að málsmeðferð þessa máls verði með eðlilegum hætti í utanríkismálanefnd, að hér verði eðlilegar gestakomur, að orðið verði við beiðnum sem stjórnarminnihlutinn mun óska eftir um álit, hvort sem það er innlendra sérfræðinga eða erlendra. Mér finnst líka hv. þingmaður og þingflokksformaður Samfylkingar skauta ansi léttilega yfir þetta mál þegar hann segir: Við hvað eruð þið hrædd? Hér er um einfalda þingsályktunartillögu að ræða. Það er reynt að gera eins lítið úr þessu máli eins og hægt er, einu stærsta máli seinni tíma í íslenskri pólitík. Þetta er bara einfalt mál. Þetta er einföld þingsályktunartillaga.

Frú forseti. Er ekki rétt, og ég geri það að tillögu minni, að forseti fresti þessari umræðu hér í dag þangað til að ráðherra er búinn að kynna málið fyrir utanríkismálanefnd eins og honum ber að gera?