157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

athugasemdir varðandi samráð og aðildarviðræður við ESB.

[15:50]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Þetta er áhugaverð tímasetning á málinu, að það sé að koma inn í þinglega meðferð og eigi að klárast á því sem mér telst til að séu sjö þingvikur fram til 29. maí. Það er páskafrí og síðan sveitarstjórnarkosningar eftir örfáar vikur. Fyrir gríðarlega stórt og flókið mál kemur á óvart þegar hæstv. utanríkisráðherra kemur hér og segir að þetta sé innanríkismál. Þetta er væntanlega stærsta utanríkismálefni sem tengist íslenskri þjóð, sem við höfum tekist á um langt tímaskeið. Jú, við sóttum um áður, 2009, þegar þessi umræða var tekin. En það þarf að fara mjög langt aftur til að sjá eitthvert málefni sem er jafn mikið utanríkismálefni og þetta. Þetta er ekki innanríkismál. Þetta er grundvallarmál um íslenska hagsmuni til lengri framtíðar, grundvallarmál. (Forseti hringir.) Að trufla sveitarstjórnarkosningarnar með þessum hætti eins og hér er gert kemur mér gríðarlega á óvart.