157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

athugasemdir varðandi samráð og aðildarviðræður við ESB.

[15:52]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Hér er á ferðinni uppgefin ríkisstjórn sem er hrædd við þjóðina og vill að við séum að ræða eitthvað allt annað en það sem við eigum að vera að ræða um og það sem skiptir heimilin í landinu máli. Um það snýst þetta mál. Það snýst um akkúrat þetta, uppgefna ríkisstjórn. Hún vill ekki hafa samráð. Hún vill bara keyra málin í gegn og lítur á þingskapalög sem eitthvert túlkunaratriði, að formið sé frjálst og að það sé bara hægt að túlka þau eins og manni hentar. Hér kemur upp forystufólk stjórnarflokkanna og talar um þingskapalög eins og eitthvert opið túlkunaratriði um hvernig megi túlka. Það er miður en lýsir í raun sálarástandi hæstv. ríkisstjórnar: Hún er uppgefin. Hún er uppgefin, hún er búin að klúðra verkefninu og nú á að fara að beina sjónum fólks að einhverju öðru. Vandamálið er hins vegar bara að atvinnuleysið, (Forseti hringir.) verðbólgan og vextirnir fara ekki neitt þrátt fyrir að ríkisstjórn umbúðanna (Forseti hringir.) reyni að tala um eitthvað annað.