framhald viðræðna um aðild að ESB.
Virðulegur forseti. Mér þykir leitt að hæstv. forsætisráðherra misskilji spurninguna og sýnir kannski að menn eru farnir að tala sitt hvort tungumálið, hér eða í Brussel. Ég spurði ekki um ávinninginn af málinu. Ég spurði hvort hæstv. forsætisráðherra teldi þessa vegferð svara þeim kostnaði sem fylgir því að kljúfa þjóðina. Það liggur fyrir að stórum hluta, jafnvel meiri hluta þjóðarinnar, myndi sárna það að ganga inn í Evrópusambandið, stórum hluta, jafnvel þótt það væri ekki meiri hluti en stórum hluta þjóðarinnar myndi sárna það. Telur hæstv. forsætisráðherra það til þess vinnandi samt sem áður að fara í þessa vegferð upp á slík býtti? Það hefur ekki verið talað um neinn aukinn meiri hluta í neinum atkvæðagreiðslum, hvorki þessari né þeirri næstu sem þyrfti að koma. Ég spyr aftur um þetta en það liggur fyrir að þetta mál mun kljúfa þjóðina. Það eru síðan aðrar spurningar, margar, sem ég hef fyrir hæstv. forsætisráðherra og ég vildi vita hvort hæstv. forsætisráðherra ætli að gefa kost á því (Forseti hringir.) með ræðu hér á eftir, eftir framsögu í málinu, að flytja hér ræðu sjálf og taka við andsvörum (Forseti hringir.) og eiga orðastað við þingmenn um þetta mál.