þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við ESB.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég er enn þeirrar skoðunar að það eigi ekki að taka ákvörðun um að fara í aðildarviðræður við Evrópusambandið byggt á efnahagsástandinu, enda er það ekki ástæðan fyrir því að það er verið að fara í þessa þjóðaratkvæðagreiðslu. Þessi ákvörðun var upphaflega tekin við myndun þessarar ríkisstjórnar. Við erum á þeim stað að vextir hafa lækkað á þessu kjörtímabili. Verðbólga, já, hún er 5%, hún var 10% á síðasta kjörtímabili. Við erum búin að fá uppfærslu á lánshæfismatinu tvisvar sinnum. Við erum búin að sjá skuldir lækka um 7,5% eftir að við fórum í uppgjör á ÍL-sjóði. Við erum búin að fara í þá vegferð núna að skila hallalausum fjárlögum í síðustu fjármálaáætlun og núna í þeirri næstu. Við erum búin að fara í þá vegferð að styrkja efnahag þjóðarinnar. Það er m.a. mitt persónulega mat að óháð því hvort við göngum í Evrópusambandið eða ekki eða förum í þessar aðildarviðræður eða ekki þá þurfum við að gera það vegna þess að það að ganga í Evrópusambandið — sem er ekki að fara að gerast á morgun, er ekki að fara að gerast í haust. Það er að fara að gerast ef við fáum já í haust og svo aftur já eftir nokkur ár. Þetta er margra ára vegferð og okkar staða í Evrópusambandinu mun ráðast af því hvort við förum sterk þangað inn. Þetta er ekki eitthvað sem þú gerir til skamms tíma. Þú gerir þetta til lengri tíma vegna þess að þú ert sammála gildum, þú ert sammála því að þú viljir vera í sameiginlegu tollabandalagi. Þú telur þig hafa einhverju til að deila. Eru ókostir? Já, án efa. Eru kostir? Já. Um þetta erum við að reyna að ræða. En það verður ekki hægt að segja bæði í þessari pontu að þetta sé skammtímalausn og síðan á sama tíma: Ef þetta er ekki skammtímalausn, af hverju eruð þið þá að þessu? Við erum að þessu vegna þess að þjóðin vill fá að svara þessari spurningu. Þetta er m.a. kosningaloforð þeirra flokka sem hér inni sitja, sem þeir virðast hafa gleymt, sem var svikið og hefur hangið yfir okkur í mörg ár. Ljúkum þessari vegferð. Ef fólk vill segja nei, farið þá og segið nei. En um það er spurt: Eigum við að halda viðræðum áfram eða ekki?