157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við ESB.

[16:14]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég vek athygli á því að þessi atkvæðagreiðsla snýst um hvort halda eigi aðildarviðræðum áfram eða ekki. Það eru ekki einstök hagsmunasamtök úti í bæ sem hafa neitunarvald fyrir hönd þjóðarinnar um það hvort hún fái að greiða atkvæði um þetta eða ekki. Það er ekkert óeðlilegt að það séu skiptar skoðanir á þessu máli. En já, auðvitað væri það óskandi að það væri virk umræða um þetta og ég vona að hagsmunasamtök beggja vegna borðsins, atvinnulífið, verkalýðshreyfingin og fleiri, taki þátt í þessari umræðu. Við erum að spyrja: Eigum við að halda þessum aðildarviðræðum áfram eða ekki? Þetta er mikilvæg spurning. Það er mikilvægt að fá svar við þessu. Ef svarið er nei þá er þessari vegferð lokið og kannski verður það enn eitt málið hér inni sem verður ekki hægt að ræða um. Kannski er það það sem minni hlutinn óttast, að hafa ekki ESB til að ræða hérna um. (Gripið fram í.)Ég treysti þjóðinni vel til að taka ákvörðun í þessu máli en mér finnst ekki að stök hagsmunasamtök eiga að ráða því hvort þjóðin sé spurð eða ekki, hvort Íslandi sé betur borgið innan Evrópusambandsins eða ekki. Mín skoðun er sú að það ræðst af því (Forseti hringir.) hvers konar fyrirkomulag okkur býðst. Ég hef alveg verið hörð á því að ég er ekki tilbúin að gefa eftir forræði okkar á náttúruauðlindum landsins (Forseti hringir.) og þess vegna vil ég sjálf sjá þennan samning og hef sagt að ég muni segja já í fyrri atkvæðagreiðslunni. Hvað ég segi í þeirri seinni, ef að henni kemur, (Forseti hringir.) verður að koma í ljós.