aðgerðir stjórnvalda til að lækka vexti og verðbólgu.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir ljómandi gott svar. Það undirstrikar svo sem að sú vegferð sem hér er hafin, þ.e. umræða um þessa þjóðaratkvæðagreiðslu sem á að fara fram í haust, hún undirstrikar það svo sem, ef ég skil forsætisráðherra rétt, að við hljótum þá að fá öll spil á borðið um hvað á að fara að tala í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu. Því það er alveg ljóst á orðum hæstv. forsætisráðherra hvað það varðar, og vitna ég nú til viðtals sem var tekið í hlaðvarpsþættinum Chess After Dark eða Skuggaskák, þar sem forsætisráðherra segir, með leyfi forseta: „Ég mun ekki bjarga vöxtum og verðbólgu í bráð með því að ganga í Evrópusambandið.“ Það er akkúrat málið. Það er það sem ég held að forsætisráðherra hafi undirstrikað hér áðan en ég ítreka það enn og aftur, (Forseti hringir.) frú forseti, að til þess að þjóðin geti tekið upplýsta ákvörðun (Forseti hringir.) verður að liggja fyrir um hvað er verið að kjósa, ekki bara um eitthvert já eða nei heldur hvað það er (Forseti hringir.) sem Íslendingar hafa þarna að sækja. Í mínum huga er það ekki neitt og þess vegna á þjóðin að segja nei. (Forseti hringir.)