aðgerðir stjórnvalda til að lækka vexti og verðbólgu.
Frú forseti. Já, ég held að það sé gott að við séum meðvituð um um hvað þessi atkvæðagreiðsla snýst. Ég treysti mér ekki til að fullyrða það inni í þessum sal nákvæmlega hvernig samning við fáum. Það treystir hv. þingmaður sér til að gera, ég geri það ekki. Kannski veit hv. þingmaður og aðrir í minni hlutanum meira en ég, kannski hafa þau séð einhverja samninga. Það liggur alveg fyrir að það verður ekkert leyst varðandi hvers konar samningur, hvers konar undanþágur, hvers konar aðlögun, hvað svo sem þið viljið kalla það, það verður ekki leyst fyrr en fólk fær að sjá hvað er í boði. Hins vegar getur vel verið og ég mun virða það ef fólk hefur ekki áhuga á þessari vegferð. Gott og vel. Leyfið þjóðinni að svara fyrir sig.
Um töfralausn er ekki að ræða en ég er hins vegar alveg sannfærð um það að ef við fáum samning sem felur í sér að tekið sé tillit til okkar þjóðareinkenna er mikið að sækja inn í Evrópusambandið, hvort sem það snýr að myntbandalagi, tollaumhverfi, nýsköpunarumhverfi, styrkjum og annað. En — þetta er stórt en — spurningin er hvort fólk vilji sjá þetta eða ekki. Um það snýst þessi atkvæðagreiðsla.