málsmeðferð í utanríkismálanefnd.
Virðulegur forseti. Ég kem hér upp því að nú eru að verða tveir tímar liðnir af þessum þingfundi þar sem eitt mál er á dagskrá og það er sem sagt þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort þjóðin telji rétt að við höldum áfram aðildarviðræðum við ESB. Í þessa næstum tvo tíma hefur þetta mál verið rætt, m.a. undir liðnum fundarstjórn forseta. Efnisleg umræða um þetta mál — ég teldi að það væri betri bragur á að við myndum einfaldlega hefja umræðuna. Ég verð þó að gera athugasemdir við það að fólk noti þennan lið, fundarstjórn forseta, til að koma hér upp með villandi upplýsingar líkt og ekkert sé um að semja í þessum aðildarviðræðum sem fram undan eru. Hér er enginn þingmaður sem getur sagt okkur hversu háan hluta af uppsjávaraflanum sem við höfum í dag við munum hafa ef við göngum inn í Evrópusambandið. Þetta er samningsatriði. Þetta er lykilatriði sem snýst í rauninni um mestu verðmætin, mestu hagsmunina fyrir íslenska þjóð, hversu hátt hlutfall við höfum þarna. Þetta eru samningsatriði sem þarf að afgreiða í samningum við Evrópusambandið. Þannig að það að halda því fram að hér sé ekkert um að semja er einfaldlega rangt. (Gripið fram í.)