málsmeðferð í utanríkismálanefnd.
Virðulegur forseti. Eini gallinn við túlkun hv. þm. Ingvars Þóroddssonar á þingskapalögunum er að það sem hann túlkar stendur ekki þarna. Það sem hv. þingmaður túlkar hefur ekki verið praktíserað með þeim hætti. Það er með ólíkindum að hæstv. utanríkisráðherra hafi ekki þorað að mæta fyrir fund utanríkismálanefndar áður en þetta mál var kynnt, með ólíkindum. Hún ætlar hins vegar að gera það þegar liðið er á málið. Allir eru hins vegar að skamma hv. þm. Guðmund Ara Sigurjónsson. Ég ætla að hrósa hv. þm. Guðmundi Árna Sigurjónssyni því hann gengst við því sem hæstv. forsætisráðherra gerir ekki. Hann veit það að ef við förum þessa leið þá göngum við í sameiginlega sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins. Hún er nefnilega sameiginleg af því að hún er sameiginleg og ef á að breyta því þá er komið að ríkjaráðstefnu. Það er með ólíkindum að hæstv. forsætisráðherra, virkur meðlimur í einhverjum já-samtökum, forsætisráðherra íslensku þjóðarinnar, komi hér og segi bara: Ég hef ekki hugmynd um hvað er í þessu. Það er bara spennandi að sjá. (Forseti hringir.) Það er í rauninni hægt að hlæja að þessu en þetta er grafalvarlegt mál. En takk, hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson, (Forseti hringir.) þú alla vega gengst við því að vita hvað felst í því að vera í Evrópusambandinu eins og allir sem það hafa kynnt sér.