157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

málsmeðferð í utanríkismálanefnd.

[16:53]
Horfa

Forseti (Bryndís Haraldsdóttir):

Forseti er enn með hv. þingmann og ráðherra á mælendaskrá undir fundarstjórn forseta. Forseti vill minna á að þetta er sá liður þar sem verið er að gera athugasemdir við fundarstjórn forseta og beinir því til hv. þingmanna að geyma efnislega umræðu um mál þangað til það verður tekið fyrir, vonandi núna hér rétt á eftir.