málsmeðferð í utanríkismálanefnd.
Virðulegi forseti. Allt sem hér er kvartað yfir núna hjá stjórnarmeirihlutanum er honum sjálfum að kenna. Það er um að kenna sambandsleysi hans, verklagi og sambandsleysi ríkisstjórnarflokkanna, ekki bara í þessu máli heldur í nánast hverju málinu á fætur öðru hér á Alþingi okkar Íslendinga. Hér kemur þingflokksformaður Samfylkingarinnar og kvartar yfir því að það sé búið að tala hér í tvær klukkustundir og umræðan ekki hafin. Það truflar greinilega þingflokksformann Samfylkingarinnar að við séum að ræða hér hversu illa þessi umræða er að hefjast, með brotum á 21. gr. þingskapalaga og með samráðsleysi. Það var beinlínis rangt sem hv. formaður utanríkismálanefndar sagði hér áðan að honum hefði borist beiðni um að fá ráðherra til fundar á föstudagskvöld vegna þess að þessi beiðni var send á meðan blaðamannafundur forsvarsmanna ríkisstjórnarflokkanna (Forseti hringir.) átti sér stað og það er óskiljanlegt af hverju utanríkisráðherra gat ekki mætt (Forseti hringir.) fyrir nefndina í morgun. Ég óska því eftir því að forseti þings, hæstvirt Þórunn Sveinbjarnardóttir, gefi frá sér yfirlýsingu um að hún muni tryggja sanngjarna og eðlilega málsmeðferð (Forseti hringir.) vegna þess að þetta mál byrjar bara ekki þannig.