157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

málsmeðferð í utanríkismálanefnd.

[17:01]
Horfa

Eiríkur S. Svavarsson (M):

Virðulegi forseti. Ég lýsi yfir furðu minni á því að þingforseti skuli ekki tjá sig um þær alvarlegu athugasemdir sem hér hafa komið fram hjá fjölda þingmanna. Þessi umræða um fundarstjórn forseta snýst um fagleg vinnubrögð. Þó að ríkisstjórnin kjósi að leggja fram þingsályktunartillögu sem geymir nær engar upplýsingar sem máli skipta fyrir kjósendur þessa lands þarf þingið ekki að taka þátt í því. Þingið á og ber að gæta að því að öll málsmeðferð þessa máls verði fagleg og tryggja að með þessari þingsályktunartillögu fylgi með allar upplýsingar sem kjósendur eiga skilið svo þeir geti tekið upplýsta ákvörðun í þessu máli. Þess vegna ætla ég að ítreka þá spurningu sem hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir hafði hér áðan og tek undir það að þingforseti eigi að gefa yfirlýsingu um sanngjarna, eðlilega, rétta og góða málsmeðferð þessa máls.